4 mar 2022

Fjölbreyttar smiðjur á Gróskudögum

Margar skemmtilegar smiðjur voru í boði fyrir nemendur á Gróskudögum þetta árið. Hægt var að velja um var að vinna í málmsuðu, tefla víkingaskák, kynna sér dulspeki, hnýta hnúta, flétta hár, fræðast um snjóflóð, prenta á taupoka, mála listaverk á veggi, flaka fisk, keppa í boccia, pool og skutlukasti og margt fleira. Þátttaka í smiðjum var góð og hér eru nokkrar myndir sem fönguðu stemmninguna.

 

28 feb 2022

Slæm veðurspá í dag

Vakin er athygli á slæmri veðurspá í dag, mánudaginn 28. febrúar. Kennt verður skv. stundaskrá en við hvetjum alla til að fylgjast vel með veðri og færð og tilkynna forföll vegna ófærðar til skrifstofu skólans með því að senda tölvupóst á netfangið misa@misa.is. Forfallist einhverjir vegna ófærðar skulu þeir sinna námi sínu og vinnu áfram í gegnum Moodle.

 

22 feb 2022

Slæm veðurspá á morgun - rafræn kennsla

Vegna slæmrar veðurspár á morgun, miðvikudaginn 23. febrúar, fellur staðbundin kennsla niður en verður rafræn í staðinn. Fylgist með upplýsingum frá kennurum á Moodle eða í tölvupósti.

22 feb 2022

Flutningur í Menntaský 25.-28. febrúar 2022

Föstudaginn 25. febrúar mun Menntaskólinn á Ísafirði flytja Microsoft skýjageira sinn yfir í Menntaskýið. Menntaskýið er verkefni á vegum íslenska ríkisins þar sem Microsoft hugbúnaður er sameinaður í eina miðlæga einingu.

Innleiðing á þessu verkefni hefst kl. 15:00 föstudaginn 25. febrúar og verður lokið mánudag 28. febrúar.

 

NOTENDUR ATHUGIÐ:

Föstudaginn 25. febrúar klukkan 15:00 verður lokað á innskráningar notenda á MÍ aðganga svo mikilvægt er að þið takið afrit af öllum upplýsingum og/eða gögnum á tölvuna ykkar ef þið þurfið að komast í þau yfir helgina.

Opnað verður aftur fyrir innskráningar á laugardaginn kl. 12:00 (mögulega fyrr).

Þegar þið skráið ykkur inn í Menntaskýið í fyrsta skipti þarf að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum: 

Flutningur í Menntaský-Leiðbeiningar-OneDrive-Windows-Mac-MFA

Ef þið lendið í einhverjum vandræðum með að skrá ykkur inn í Teams/Outlook o.s.frv. getið þið notað vefútgáfurnar af forritunum á www.office.com

Gögn úr Forms eyðublaðaforritinu og Sway kynningaforritinu þurfa notendur að flytja sjálfir fyrir föstudaginn 25. febrúar kl. 15:00 (annars eyðast þessar upplýsingar síðar meir).

Vinsamlega kynnið ykkur hvernig það er gert í eftirfarandi leiðbeiningum:

Frekari aðstoð vegna aðstoð við Forms, Sway eða Stream veitir Snerpa í síma 520 4000 eða tölvupósti firma@snerpa.is  til föstudagsins 25. febrúar kl. 12:00.

Einnig verður virkjuð tveggja þátta auðkenning notenda yfir helgina, sjá nánar í ofangreindum leiðbeiningum.

Mikilvæg forvinna er að allir notendur (bæði kennarar og nemendur) prófi um helgina að innskrá sig inn á Menntaskýið. Þannig er hægt að lágmarka fjölda þeirra notenda sem þarf að veita notendaaðstoð.

Starfsmenn Snerpu munu sinna notendaaðstoð mánudaginn 28. febrúar á bókasafni Menntaskólans á Ísafirði frá klukkan 8:00-16:00 og aðstoða þá notendur sem þurfa þess.

Það er von okkar að verkefnið gangi vel og þar er forvinna notenda mikilvæg.

Ítarlegri leiðbeiningar má finna inn á vefsíðu Menntaskýsins  

21 feb 2022

Slæm veðurspá 22. febrúar

Við viljum vekja athygli á slæmri veðurspá á morgun, þriðjudag 22. febrúar. Kennt verður skv. stundaskrá en við hvetjum alla til að fylgjast vel með veðri og færð og tilkynna forföll vegna ófærðar til skrifstofu skólans með því að senda tölvupóst á netfangið misa@misa.is. Forfallist einhverjir vegna ófærðar skulu þeir sinna námi sínu og vinnu áfram í gegnum Moodle.

Með góðri kveðju, stjórnendur Menntaskólans á Ísafirði

15 feb 2022

Ársskýrsla FABLAB

Út er komin ársskýrsla ársins 2021 fyrir FABLAB á Ísafirði sem er starfrækt hér í húsnæði MÍ. Á síðasta ári urðu talsverðar breytingar á aðkomu að rekstri FABLAB. Nýsköpnarmiðstöð Íslands var lögð niður og í stað hennar komu ráðuneyti nýsköpunar og ráðuneyti mennta og menningarmála inn í samstarf um rekstur á FABLAB ásamt MÍ og sveitarfélögunum á norðanverðum Vestfjörðum. Við þessa breyting fékkst meira fjármagn til rekstursins og hægt var að ráða einn starfsmann til viðbótar í smiðjuna. Svavar Konráðsson, nýr starfsmaður hóf störf sem verkefnastjóri og kennari í september og Þórarinn Bjartur Breiðfjörð starfar áfram sem forstöðumaður FABLAB. Árskýrsluna má lesa hér.

14 feb 2022

Háskóladagurinn 2022

Háskóladagurinn verður haldinn með stafrænum hætti þann 26. febrúar milli kl. 12 og 16. Námsframboð í háskólum landsins verður þá kynnt með rafrænum hætti. Sjá nánar á

Háskóladagurinn

Nemendur MÍ sem hyggja á háskólanám á næstu misserum eru hvött til að kynna sér hvað skólarnir hafa upp á að bjóða.

8 feb 2022

Staðbundin kennsla fellur niður í dag

Vegna slæmrar veðurspár, ófærðar og röskunar á almenningssamgöngum í dag, þriðjudaginn 8. febrúar, fellur staðbundin kennsla niður en verður rafræn í staðinn.