7 nóv 2013

Skólavist á vorönn

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í MÍ á vorönn 2014. Sótt er um í gegnum menntagátt. Vakin er athygli á því að skólinn er nú þátttakandi í Fjarmennaskólanum. Upplýsingar um það hvaða áfanga MÍ mun bjóða upp á í Fjarmenntaskólanum er að finna hér á heimasíðunni. Allar upplýsingar um Fjarmenntaskólann er að finna á fjarmenntaskolinn.is

23 okt 2013

Valdagur á haustönn

Í dag 23. október er valdagur í skólanum. Nemendur yngri en 18 ára eiga að hitta umsjónarkennara í umsjónartíma kl. 14.05 og velja áfanga fyrir komandi vorönn. Opið verður fyrir val í gegnum INNU til og með 28. október. Eftir það þurfa nemendur að fá tíma hjá námsráðgjafa eða áfangastjóra til að fá aðstoð við valið. Smellið á hlekkina hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um hvernig og hvað þið eigið að velja.
Leiðbeiningar um hvernig valið er í gegnum INNU
Framvinda bóknámsbrauta eftir árum
Framvinda verknámsbrauta eftir árum
Áfangar í boði á vorönn 2014

15 okt 2013

Kappróður 2013

Keppt var í róðri á sexæringum á Pollinum í Skutulsfirði í dag. Alls tóku 9 lið þátt í keppninni og róið var frá skútubryggju að bauju framan við Neista. Leikar fóru svo að karlalið kennarar bar sigur úr býtum og hefur formleg kæra vegna þeirra úrslita ekki borist dómara og tímavörðum. Í öðru sæti var liðið Meistari Jakob og í þriðja sæti var Áhöfnin á Húna í sinni annarri tilraun. Auk kennara og nemenda MÍ tóku nemar í haf- og strandsvæðastjórnun frá Háskólasetri Vestfjarða þátt í keppninni. Heildarúrslit og tíma má sjá með því að smella hér.
27 sep 2013

MÍ sigrar í HJÓLUM Í SKÓLANN

Í síðustu viku stóð yfir keppnin Hjólum í skólann á milli framhaldsskóla landsins. Skólum var skipt í þrjá flokka eftir fjölda nemenda og starfsmanna. Leikar fóru svo að Menntaskólinn á Ísafirði sigraði keppnina í sínum flokki sem var flokkur skóla með færri en 400 nemendur og starfsfólk. Nemendum og starfsfólki skólans er óskað til hamingju með sigurinn. Svo er um að gera að láta ekki fyrsta sætið úr greipum ganga á næsta ári. Nánar má lesa um keppnina og úrslitin á síðunni http://hjolumiskolann.is/
18 sep 2013

Þemaár geðræktar

Nú er að hefjast þriðja árið sem MÍ er þátttakandi í átakinu Heilsueflandi framhaldsskóli. í tilefni af því að þetta skólaár verður helgað geðrækt mun embætti landlæknis standa fyrir málþingi um geðrækt í framhaldsskólum, föstudaginn 20 september. Verkefnisstjóri MÍ er Jónas L. Sigursteinsson íþróttakennari. Hann mun sækja málþingið fyrir okkar hönd en nánar má lesa um það á heimasíðu landlæknisembættisins. http://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item21051/Malthing-um-gedraekt-i-framhaldsskolum
17 sep 2013

Nýnemaferð og busavígsla

Myndir úr nýnemaferð og busavígslu eru nú komnar inn á heimasíðuna. Í nýnemaferðinni var að vanda farið í Dýrafjörð. Gist var á Hótel Núpi og farið í gönguferðir, út á Arnarnes og í Skrúð. Nemendur sáu um kvöldvöku og stjórn NMÍ kom í heimsókn og kynnti félagsstarf vetrarins.
2 sep 2013

Jöfnunarstyrkur

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum!

Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2013-2014 er til 15. október næstkomandi!

Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd



28 ágú 2013

Nýnemaferð

Nýnemaferð Menntaskólans á Ísafirði 29. – 30. ágúst 2013

Náms- og samskiptaferð að Núpi í Dýrafirði

 

Fimmtudagur:

  • Mæting kl. 8:00.  Lagt af stað      eigi síðar en kl. 8:30
  • Keyrt að Núpi
  • Nemendur og kennarar koma sér fyrir á herbergjum
  • Kl. 10:00 verður gönguferð
  • Hádegisverður kl. 13:00
  • Frjáls tími
  • Kl. 14:30 verður leiðsögn um svæðið - Skrúður
  • Kaffitími kl. 15:30
  • Nemendum skipt í hópa til að undirbúa kvöldvöku en annars frjáls tími      fram að kvöldmat
  • Kvöldmatur kl. 19:00
  • Nemendur undirbúa kvöldvöku kl. 19:30-20:00
  • Kvöldvaka kl. 20:00 en einn af hápunktum hennar eru magnaðar      draugasögur sem sagðar verða af fyrrverandi og núverandi staðarmönnum
  • Fulltrúar NMÍ koma í heimsókn og kynna félagslífið
  • Svefntími kl. 23:30

 

Föstudagur:

  • Farið á fætur kl. 9:00
  • Morgunverður kl. 9:00 – 9:45
  • Ratleikur hefst kl. 10:00 - hópaskipti
  • Gengið frá í herbergjum og farangur tekinn saman frá kl. 11:30 – 12:00
  • Brottför frá Núpi kl. 12:00

 

ATH!  Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar þar sem að veður gæti sett strik í reikninginn.

 

NAUÐSYNLEG MINNISATRIÐI:

  • Skólareglur gilda í ferðinni
  • Skólinn greiðir rútuferðir
  • Nemendur greiða fyrir gistingu og fæði
  • Inni í fæði er hádegisverður, miðdegissnarl, kvöldverður og kvöldkaffi      á fimmtudag og morgunmatur á föstudag
  • Nemendur taka með sér nesti fyrir fimmtudagsmorgun (ef þörf er á)
  • Kostnaður er 6.700 kr.       Nemendur greiða með peningum í rútunni við brottför
  • Nemendur eiga að hafa með sér kodda, svefnpoka/sæng og lak 
  • Takið með ílát undir ber J
  • Nemendur verða að vera vel klæddir og koma með hlý föt og viðeigandi      skófatnað

 

Eftirtaldir starfsmenn fara með í ferðina:

Emil Ingi Emilsson, Friðgerður Guðný Ómarsdóttir,

Jónas Leifur Sigursteinsson og Stella Hjaltadóttir GSM: 846-6206

8 ágú 2013

Annarbyrjun

Skrifstofa skólans er nú opin aftur eftir sumarleyfi. Námsráðgjafar koma til starfa þann 15. ágúst og skólinn verður settur þann 22. ágúst kl. 9. Nýnemar og nemendur yngri en 18 ára hitta umsjónarkennara að lokinni skólasetningu og fá stundatöflur afhentar. Að því búnu hefjast töflubreytingar. Kennsla hefst föstudaginn 23. ágúst.