Fréttir
Nú er dreifnám farið af stað í húsasmíði og hófst smíði á sumarhúsi á bílaplani skólans föstudagskvöldið í ágætis slagviðri. Má hrósa hópnum fyrir mikla seiglu við smíðina um helgina.
Skipstjórnarlotu þurfti hins vegar að fresta vegna veðurs þar sem veður hamlaði för bæði eins kennara og nokkurra nemenda og verður hún haldin næstu helgi í staðinn.
Alls stunda 53 nemendur dreifnám í húsasmíði og skipstjórn við MÍ.
Menntaskólinn á Ísafirði hefur hlotið jafnlaunavottun og er þar með þriðji framhaldsskólinn á landinu að hljóta vottunina og fyrsta stofnunin á Vestfjörðum.
Gettu betur lið MÍ sem þau Davíð Hjaltason, Einar Geir Jónasson og Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir skipa keppti miðvikudagskvöldið 8. janúar við lið Fjölbrautaskólans í Ármúla. FÁ hafði betur í keppninni en MÍ komst áfram í næstu umferð sem stigahæsta taplið umferðarinnar. Mun lið MÍ keppa á móti Verkmenntaskóla Austurlands n.k. þriðjudag, 14. janúar.
Hægt er að fylgjast með Gettu betur á vef RÚV Núll: www.ruv.is/null
Menntaskólinn á Ísafirði keppir við Fjölbrautaskólann við Ármúla í Gettu betur í kvöld, miðvikudaginn 8. janúar. Hægt er að fylgjast með keppninni á RÚV Núll kl. 21.00. www.ruv.is/null
Lið Menntaskólans á Ísafirði skipa Davíð Hjaltason, Einar Geir Jónasson og Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir.
Þjálfari liðsins er Veturliði Snær Gylfason.
Við óskum liði MÍ góðs gengis og hvetjum alla til að fylgjast með í kvöld. Áfram MÍ.
Skólahald Menntaskólans á Ísafirði hófst mánudaginn 6. janúar með hraðstundatöflu og kennsla hófst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. janúar.
Innritun fyrir vorönn er lokið bæði í fjarnám og dagskóla.
Nemendur Menntaskólans á Ísafirði hafa aldrei verið fleiri en nú. Alls eru 477 nemendur skráðir í skólann.
Fjarnemum fjölgar stöðugt og eru nú 163. Af fjarnemum eru 54 nemendur með Menntaskólann á Ísafirði sem sinn heimaskóla. Dagnemum fækkar og eru nú 161 dagnemi í skólanum. Í dreifnámi eru 20 nemendur í húsasmíði, 33 nemendur í námi á A-stigi skipstjórnar og 100 nemendur eru í sjúkraliðanámi.
Skólahald fer ánægjulega af stað með metfjölda nemenda í skólanum.
Þann 18. desember s.l. var undirritaður styrktarsamningur milli Menntaskólans á Ísafirði og Ísafjarðarbæjar vegna afreksíþróttasviðs. Sex íþróttagreinar eru í boði á afreksíþróttasviðinu; blak, dans, handbolti, knattspyrna, körfubolti og skíðaganga.
Í samninigi MÍ og Ísafjarðarbæjar er kveðið á um að framlag MÍ sé að skipuleggja starfsemi afreksíþróttasviðsins og semja við þjálfara um þjálfun í sínum greinum, Sjúkraþjálfun Vestfjarða um þrekæfingar og að leggja til kennara og húsnæði. Einnig er rekstrarkostnaður, kynning og utanumhald í höndum MÍ. Ísafjarðarbær leggur til 1.911.613 kr. sem eru ætlaðar í launagreiðslur til þjálfara þeirra íþróttagreina sem í boði eru auk þess sem sveitarfélagið leggur til tíma í íþróttahúsinu á Torfnesi sem eru annars ekki í notkun í samráði við forstöðumenn íþróttamannvirkja.
Jón Reynir Sigurvinsson, skólameistari Menntakólans á Ísafirði,og Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar undirrituðu samninginn. Um 40 nemendur skólans stunda nám við afreksbrautina og var hluti þeirra viðstaddur undirritunina.
Þann 20. desember voru 14 nemendur brautskráðir frá Menntaskólanum á Ísafirði við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju. Einn nemandi var útskrifaður með A-réttindi skipstjórnar og einn nemandi lauk sjúkraliðaprófi. Tólf nemendur útskrifuðust með stúdentspróf. Níu af opinni stúdentsbraut, þar af einn af afreksíþróttasviði. Tveir af félagsvísindabraut og einn lauk stúdentsprófi af fagbraut. Í athöfninni voru skírteini afhent, auk þess sem verðlaun voru veitt fyrir góðan námsárangur og framfarir í námi. Oliver Rähni nemandi á fyrsta ári lék á píanó í athöfninni. Skólinn óskar öllum útskriftarnemum góðs gengis í framtíðinni og þakkar þeim samstarf og samveru undanfarin ár.
Föstudaginn 20. desember verða 14 nemendur brautskráðir frá skólanum. Einn nemandi útskrifast af skipstjórnarbraut A og einn útskrifast sem sjúkraliði. Alls ljúka tólf nemendur stúdentsprófi, níu af opinni stúdentsbraut, tveir af félagsvísindabraut og einn lýkur stúdentsprófi af fagbraut. Brautskráningarathöfnin mun fara fram í Ísafjarðarkirkju og hefst kl. 15. Flutt verður tónlist og verðlaun veitt fyrir góðan námsárangur. Allir eru velkomnir.



